Go to content

Baksagan: Hindranir í vegi réttlátra grænna umskipta

Flest þeirra mála sem rædd eru tengdust grænum orkuverkefnum sem krefjast mikillar landnotkunar og breytinga á landslagi, það er vindgörðum. Þess vegna snerust umræðurnar oftast um það hvernig nálgast megi réttlætishugtakið í aðstæðum þar sem áhrif umskipta eru margþætt og oft óbein. Löggjöf á Norðurlöndum felur í sér skýrar reglur um mat á áhrifum og bótum þeim tengdum. Þær snúast þó oft um fjárhagslegar bætur sem eingöngu eru greiddar landeigendum á beinu áhrifasvæði orkuframkvæmdanna. Auk fasteignaskatts getur verið um að ræða ýmiss konar ávinning fyrir samfélagið, svo sem uppbyggingu íþróttamannvirkja í bænum. Ávinningur af þessu tagi hefur gjarnan yfir sér yfirbragð ölmusu. Ef við þetta bætist að við upphaf grænna orkuverkefna gæti mikillar bjartsýni, t.d. með tilliti til atvinnusköpunar eða efnahagslegra áhrifa, geta vonbrigði vegna raunverulegs ávinnings ógnað samfélagslegri sátt um allar framkvæmdir vegna endurnýjanlegrar orku í framtíðinni. Aðrar hindranir tengjast því að gera óhlutbundnari markmið, svo sem varðandi umhverfissjónarmið eða loftslagsaðgerðir, áþreifanlegri og tengja þau betur veruleika heimamanna. Í stuttu máli þarf ferlið í tengslum við nýjar orkuframkvæmdir að miða betur að því að draga úr vantrausti til þess að sveitarfélög þurfi ekki að standa undir þunganum af stefnu ríkisins.