1. Skipulagsferli
Á fyrsta stigi skipulags geta sveitarstjórnarmenn og hugsanlegir aðilar úr atvinnulífinu sem sýna svæðinu áhuga hafið vinnuna við upplýsingagjöf og aðkomu almennings áður en nokkrir samningar hafa verið gerðir. Slíkar aðgerðir virkja samfélög á staðnum, landeigendur og útivistarsamtök en ná einnig til breiðari hóps virkra borgara og fræðimanna í gegnum netið.
