Vaxandi áhrif loftslagsbreytinga, breyttur efnahagslegur og pólitískur veruleiki og nýleg orkukreppa hafa gert það að verkum að flestir Norðurlandabúar telja græn umskipti nauðsynleg. Framleiðsla endurnýjanlegrar orku er dreifðari en framleiðsla á jarðefnaeldsneyti eða kjarnorku og því hefur hún veruleg áhrif á landslag og landnotkun. Fyrir vikið eru norræn dreifbýlissvæði mikilvæg þegar kemur að því að uppfylla markmið um græn umskipti. Þó eru nú þegar teikn á lofti um að umbreytingarferlið muni hafa misjöfn áhrif í þéttbýli annars vegar og dreifbýli hins vegar og skilja svæði sem nú þegar eru jaðarsett enn frekar eftir. Samkvæmt nýlegum könnunum á meðal almennings skynja íbúar dreifbýlissvæða þetta einnig. Okkur gengur því ekki vel við að hrinda grænum umskiptum í framkvæmd með réttlátum hætti og það setur vinnuna að því að uppfylla loftslagsmarkmið okkar í hættu (t.d. Rodríguez-Pose og Bartalucci 2023; Tapia o.fl. 2023; Ovaska & Vihinen 2020).
Hvernig getum við tryggt réttlátari græn umskipti í dreifbýli? Þetta stefnuyfirlit er byggt á tilviksrannsóknum í verkefninu Just Green Transition in rural areas: local benefits from value creation, sem ætlað var að skoða hvers konar ávinningur af aðgerðum í þágu grænna umskipta gæti skapað verðmæti á beinum áhrifasvæðum nýrra orkuverkefna. Tilviksrannsóknirnar fóru fram í þremur norrænum löndum og á sex stöðum: Í norðurhluta Austurbotns og norðurhluta Mið-Finnlands varðandi vindorku og landnotkunarskipulag, Nord-Fron og Nord-Odal í Noregi varðandi bæði vindorku og sjálfbæra stefnumótun, og í Skive og á Borgundarhólmi í Danmörku varðandi blandaða notkun endurnýjanlegra orkugjafa í tengslum við uppbyggingu iðngarða.
Niðurstöðurnar undirstrika mikilvægi þess að taka mið af þörfum heimamanna og, sem skiptir sköpum, að virkja samfélagið í skipulagningu og innleiðingu grænna orkuskipta strax frá upphafi. Ef ný og græn orkuverkefni væru ávallt í eigu stað- eða svæðisbundinna samvinnufélaga og framleiddu einkum orku til staðbundinna nota ætti fólk auðvelt með að upplifa að það ætti hlutdeild í verkefnunum.
Þetta er þó ekki oft raunhæft. Í Skive í Danmörku stóð sveitarfélagið að stofnun græna iðngarðsins GreenLab, sem hefur allt frá stofnun sinni verið dæmi um fyrirmyndarframkvæmd, öðrum sveitarfélögum til eftirbreytni. Slíkt verkefni er þó erfitt að leika eftir án umtalsverðrar opinberrar fjárfestingar. Er hægt að skapa meira svigrúm til staðbundinna aðgerða, jafnvel í sveitarfélögum sem ekki hafa úr miklu að moða?
Með tillögum þessa stefnuyfirlits er leitast við að svara þessari spurningu í því augnamiði að yfirstíga algeng vandamál sem tengjast grænum orkuverkefnum og jafnframt að stuðla að því að heimafólk upplifi réttlæti. Þær fela í sér:
að leggja áherslu á virkjun samfélagsins snemma í ferlinu og gagnsæja upplýsingagjöf og að kynna aðeins raunhæfa framtíðarsýn til að kortleggja öll möguleg áhrif nýrra orkuverkefna og bæta aðkomu heimafólks;
að sveitarfélög hjálpi til við að koma á sameiginlegum samningaviðræðum og upplýsingamiðlun á milli opinberra aðila í því skyni að fjölga bótaleiðum og þrýsta á orkufyrirtæki að auka aðkomu almennings;
að finna leiðir til þess að gera annan ávinning af grænum umskiptum en fjárhagslegan og mælanlegan, svo sem félagslega velferð og aðdráttarafl sveitarfélagsins, sýnilegan;
að átta sig á og nýta smæð dreifbýlissveitarfélaga með því að virkja borgarahreyfingar, smærri verkefni og sveigjanlegri stjórnsýslu.
Að lokum er bent á að dreifbýlissvæði á Norðurlöndum standi frammi fyrir nokkrum samtvinnuðum tegundum umskipta og áskorunum þeim tengdum samtímis, svo sem grænum umskiptum, stafvæðingu og aðlögun að fólksfækkun og skorti á vinnuafli, svo eitthvað sé nefnt. Við þessar aðstæður er mikilvægt að muna að vinna saman þvert á geira og stjórnsýslueiningar til að samræma úrræði og taka tillit til allra aðila og hagsmunaaðila sem grænu umskiptin hafa áhrif á.
Loks þurfum við að íhuga hvað réttlæti felur í sér í samhengi við græn umskipti. Í núgildandi reglum og áhrifamatsferli er aðeins tekið tillit til ákveðinna þátta þess. Með því að átta okkur á þessu og opna ferlin í tengslum við nýjar orkuframkvæmdir strax á upphafsstigi þeirra kann að koma í ljós að höfuðborgarsvæðin þurfi að ná dreifbýlinu en ekki öfugt.