Go to content
(Mynd: Gina Janosch / Pixabay)

Helstu áskoranir og leiðir til að takast á við þær

Í þessum kafla er fjallað um helstu áskoranir sem fram komu á vinnufundi hagsmunaaðila og hugsanlegar leiðir til að takast á við þær. Áskorununum er skipt niður í flokka og fyrir hvern þeirra er fjallað um lausnir sem nýtast við gerð stefnumarkandi vegvísis um framtíð rafknúins flugs.

Áskoranir varðandi stefnumörkun

Töluverðar pólitískar áskoranir tengjast innleiðingu rafknúins flugs. Þótt mikilvægt sé að norrænu löndin hafi skýra framtíðarsýn dugar það eitt og sér ekki til að ná markmiðinu án beinna aðgerða og stefnu. Áskoranir eru eftirfarandi:
  • Skortur á pólitískum vilja sem leiðir til þess að alþjóðlegt samstarf er ekki nægilegt.
  • Óleyst fjármögnunarmál. Fjármögnunarmál fá litla athygli á vettvangi stjórnmálanna, sem skapar stóra hindrun fyrir innleiðingu.
  • Skortur á skilningi á mikilvægi flugsamgangna fyrir dreifðar byggðir á vettvangi ESB. Svokölluð „flugskömm“ hefur færst í vöxt, einkum þar sem ESB beinir sjónum sínum í vaxandi mæli að því að draga úr flugi og ýta undir vega- og járnbrautarsamgöngur. Slík afstaða er angi af víðtækara pólitísku andrúmslofti þar sem flugsamgöngur eru í auknum mæli litnar hornauga vegna umhverfissjónarmiða. Þetta setur norrænu löndin í erfiða stöðu þar sem þau eru háðari flugsamgöngum en aðrar Evrópuþjóðir.
  • Skortur á samræmdri nálgun norrænu þjóðanna  þegar kemur að því að tala máli rafknúins flugs.
  • Skortur á skýrum leiðbeiningum frá ESB. Þörf er á þeim til þess að styðja við þróun og innleiðingu rafræns flugs.

Hvað er hægt að gera?

Sérfræðingarnir sem tóku þátt í vinnustofunni bentu á að mikilvægt fyrsta skref sé samnorræn stefna og aðgerðaáætlun á sviði rafknúins flugs. Slík stefna myndi skipta sköpum þegar kemur að því að samræma reglusetningu og tæknilega og fjárhagslega þróun rafknúins flugs. Jafnframt myndi hún skipta miklu máli varðandi samstillt átak við fjármögnun kolefnishlutlauss flugs ásamt því að hvetja til samstarfs hagsmunaaðila til að takast á við fjármögnunarvandann.
Hver á að bregðast við:
Ríkisstjórnir landanna og Evrópusambandið

Áskoranir varðandi regluverk

  • Skortur á sameiginlegum stöðlum um flugvallarinnviði. Þörf er á slíkum stöðlum til að styrkja alþjóðleg tengsl og tæknilega nýsköpun á sviði rafknúins flugs. Hætta er á að skortur á þeim geti tafið innleiðingu tækninnar.
  • Gera þarf regluverk um flugþjónustu sveigjanlegra gagnvart nýrri tækni. Núverandi landsbundnar og evrópskar reglugerðir um flugþjónustu eru  oft of stífar til að aðlagast nýrri tækni. Að hluta til stafar það af réttmætum öryggissjónarmiðum í tengslum við innleiðingu og rekstur nýrrar tækni en engu að síður getur það heilt yfir hægt á framþróun í greininni. Evrópsk krafa um að banna innanlandsflug getur hægt enn frekar á þróuninni. Taki slíkar reglur gildi of snemma, áður en ný tækni er tilbúin og getur tekið við, hefði það neikvæð áhrif á núverandi samgöngukerfi, einkum í dreifðum byggðum.

Hvað er hægt að gera?

Að lokinni innleiðingu á samnorrænni stefnu í flugmálum er hægt að koma á ramma um samræmda staðla á svæðinu. Slíkt getur aukið skilvirkni í rafknúnu flugi þvert á landamæri. Jafnframt myndi sveigjanlegt regluverk á sviði flugmála styðja við tækniframfarir í rafknúnu flugi.
Hver á að bregðast við:
Norrænu ríkisstjórnirnar í sameiningu

Áskoranir varðandi umhverfismál

  • Skortur á þekkingu og rannsóknum varðandi lífsferilsgreiningar. Takmörkuð þekking og rannsóknir eru til staðar um lífsferilsgreiningu rafknúinna flugvéla. Nauðsynlegt er að skilja heildarumhverfisáhrif slíkra flugvéla, allt frá framleiðslu til förgunar, til að geta lagt mat á sjálfbærni þeirra, einkum þegar kemur að framleiðslu á rafhlöðum. Sömuleiðis þarf að bera umhverfisáhrif rafknúins flugs saman við aðra samgöngumáta, sérstaklega með tilliti til námuvinnslu í þágu rafhlöðuframleiðslu. Það er nauðsynlegt til að tryggja að umskipti yfir í rafknúið flug valdi ekki ótilætlað meiri umhverfisskaða vegna aukinnar þarfar á námu- og hráefnisvinnslu.
Electric aviation roadmap 3

Hvað er hægt að gera?

Ríkisstjórnir og háskólastofnanir þurfa að setja á laggirnar rannsóknaráætlanir þar sem sjónum er beint að því að framkvæma umfangsmiklar lífsferilsgreiningar til að ákvarða raunveruleg umhverfisáhrif rafknúinna flugvéla. Jafnframt er mikilvægt að bera umhverfisáhrif rafknúins flugs saman við aðra samgöngumáta, einkum með tilliti til hráefnisvinnslu og förgunar á rafhlöðum.
Hver á að bregðast við:
Ríkisstjórnir landanna og rannsóknarstofnanir

Efnahagslegar og tæknilegar áskoranir

  • Arðsemi. Líklegt er að erfitt reynist að skila hagnaði af litlum rafknúnum flugvélum, sérstaklega á frumstigi innleiðingar.
  • Miðaverð. Hátt miðaverð, einkum á fyrri stigum, getur fælt hugsanlega viðskiptavini frá og komið í veg fyrir vöxt. Einnig er óvissa um það hver muni njóta góðs af rafknúnu flugi þegar upp er staðið, þ.e. hvort þjónustan verði á viðráðanlegu verði og aðgengileg almennum hópi notenda eða einskorðist við sérhæfða markhópa á borð við ferðaþjónustu eða viðskiptaferðalög.
  • Þróun á sveigjanlegri tækni. Skortur á stöðlum varðandi orkukræfni þegar kemur að rafknúnu flugi er stór hindrun í vegi tækniþróunar. Núverandi rafhlöðutækni er sömuleiðis ófullnægjandi, sem þýðir að þörf er á frekari þróun til að uppfylla þarfir rafknúins flugs.

Hvað er hægt að gera?

Til að takast á við áskoranir af þessu tagi þarf bæði pólitískan stuðning, tækniframfarir og fjárfestingar í rannsóknum.
Til að takast á við arðsemisvandann gæti blanda af niðurgreiðslu af hálfu stjórnvalda og fjárhagslegum hvötum hjálpað til við að draga úr kostnaði í upphafi og gera rafknúið flug að raunhæfari kosti. Í upphafi getur borgað sig að einbeita sér að eftirsóttum, stuttum leiðum sem gera það kleift að yfirstíga landfræðilegar hindranir og hægt er að sinna vel með litlum rafknúnum flugvélum til að auka tekjur og sýna fram á arðvænleika markaðarins.
Til að takast á við vandamál tengd miðaverði má nýta fjárhagslega hvata til að lækka kostnað fyrir farþega og gera rafknúið flug meira aðlaðandi. Einnig kann að koma til greina að setja upp mismunandi verð fyrir annars vegar heimamenn og hins vegar ferðamenn og niðurgreiða þannig miða fyrir heimamenn.  Þá er mikilvægt að horfa til tímaþáttarins: eftir því sem framleiðsla eykst og samkeppni eflist mun framleiðslukostnaður rafknúinna flugvéla líklega lækka sem mun leiða til lægra miðaverðs þegar fram líða stundir.
Loks ber að nefna að núverandi rafhlöðutækni er mikil hindrun í vegi almennrar innleiðingar með tilliti til orkuþéttleika og hleðslutíma og því skiptir sköpum að bæði hið opinbera og einkageirinn fjárfesti í rannsóknum og þróun til að flýta fyrir framförum.
Hver á að bregðast við:
Ríkisstjórnir landanna og rótgrónir aðilar í greininni