Í vegvísinum er gerð grein fyrir áföngum á leiðinni að því markmiði að innleiða rafknúið flug. Sköpum skiptir að mótuð verði samnorræn stefna um rafknúið flug með það fyrir augum að skiptast á þekkingu, þróa tækni, setja reglur um staðla, auka nýsköpun og að lokum ná fram samfélagslegri sátt sem oft getur verið mikil áskorun, einkum á fyrstu stigum innleiðingar nýrrar tækni.
Samkvæmt vegvísinum er gert ráð fyrir því að með því að ná þessum áföngum samhliða markvissum kynningarátökum megi auka stuðning almennings við rafknúið flug. Vegna núverandi stöðu varðandi stjórnmál og regluverk, sem og þróun tækni og innviða, er mjög erfitt að segja nákvæmlega til um hvenær og hvernig þessi skref verða stigin.
Engu að síður er afar brýnt að halda þessari umræðu á lofti, ekki síst í ljósi þeirra metnaðarfullu markmiða sem flest norrænu löndin hafa sett sér um að innanlandsflug verði sjálfbært fyrir árið 2030 eða 2040.