Go to content
(Mynd: Miia Itänen)

Samantekt

Árið 2024 má rekja um það bil 2,5 prósent allrar losunar á koldíoxíði í heiminum til flugumferðar. Þó að þessi tala kunni að virðast lítilvæg er raunverulegt framlag flugiðnaðarins til loftslagsbreytinga mun meira. Undir loftslagsáhrif flugiðnaðarins falla raunar fleiri tegundir losunar og því eru heildarumhverfisáhrif hans mun meiri en ella (Arvidsson o.fl., 2024).
Rafknúnar flugsamgöngur (electric aviation, EA)
Aðrar sjálfbærar lausnir (svo sem sjálfbært flugvélaeldsneyti (SAF) og tvinnlausnir) geta einnig haft veruleg jákvæð umhverfisleg áhrif, einkum á meðan unnið er að því að flug verði að fullu rafknúið. Vegna flækjustigs hverrar lausnar fjallar þetta stefnuyfirlit þó eingöngu um rafknúið flug.
eru vænlegur kostur til að draga úr þessum áhrifum. Einkum keppast norrænu löndin við að vera í fararbroddi við að taka þessa nýju tækni upp og hafa þau sett sér metnaðarfull markmið varðandi innleiðingu hennar í náinni framtíð.
Mörgum spurningum er þó enn ósvarað og yfirstíga þarf ýmsar hindranir áður en rafknúnar flugsamgöngur geta orðið að veruleika. Er nægilegur pólitískur vilji á Norðurlöndum til þess að styðja við þessar aðgerðir? Hvernig verða þær fjármangnaðar? Er nauðsynleg tækni og innviðir til staðar?
Þetta eru aðeins nokkur af þeim mikilvægu atriðum sem fjallað er um í þessu stefnuyfirliti, sem byggt er á niðurstöðum frá vinnustofu fyrir hagsmunaaðila sem haldin var í júní 2024 í tengslum við verkefnið 'Electric Aviation and the Effects on the Nordic Region'. Sjö þátttakendur tóku þátt í vinnustofunni og áttu öll norrænu löndin fimm
Fulltrúar: NISA, NEA, Icelandair, Isavia, flugmálayfirvöld Danmerkur, samgönguráðuneyti Noregs, Helsinki Electric Aviation Association.
fulltrúa. Áhersla var lögð á að kortleggja helstu hindranir við innleiðingu rafknúins flugs og að leita raunhæfra lausna. Meginniðurstaðan var að taka saman stefnumarkandi vegvísi sem fjallar um þau mikilvægu skref sem stíga verður til þess að rafknúið flug megi verða að veruleika á næstu árum.