Go to content
(Mynd: Niklas Jonasson / Unsplash)

Núverandi staða og markmið

Engin samræmd löggjöf eða stefna í flugmálum er til staðar á Norðurlöndum. Formlegu samstarfi í samgöngumálum á ráðherrastigi var hætt árið 2005 þegar Norræna ráðherranefndin um samgöngumál (MR-Transport) var lögð niður í tengslum við endurskipulagningu. Þess í stað hafa ýmsar norrænar aðgerðir og samstarfsverkefni á sviði flugmála, svo sem NEA
Nordic Network for Electric Aviation, nánar á: https://nordicnea.com/
og NISA
Nordic Initiative for Sustainable Aviation, nánar á: https://nisa.dk/NISA/#AboutNISA
, litið dagsins ljós, auk landsbundinna stefna og markmiða varðandi sjálfbært flug, þar á meðal áherslu á rafknúið flug. Hér á eftir er stiklað á stóru um helstu aðgerðir. Ítarlegri greiningu má nálgast í skýrslum sem gefnar voru út í tengslum við verkefnið 'Electric Aviation and the effects on the Nordic Region'. (Cavicchia o.fl., 2024; Löfving o.fl., 2023; Wendt-Lucas, 2023)

Danmörk

Dönsk stjórnvöld kynntu áætlunina „Grænt flug fyrir alla“ í september 2022 þar sem stefnt er að því að allt innanlandsflug verði að fullu grænt fyrir árið 2030 (Samgönguráðuneyti Danmerkur o.fl., 2022). Aðgerðirnar fela meðal annars í sér niðurgreiðslu á flugi og beinast að mestu að notkun sjálfbærs flugvélaeldsneytis (SAF). Í Danmörku mun sjálfbært flugvélaeldsneyti fyrst og fremst verða framleitt úr lífmassa og úrgangi frá landbúnaði, öfugt við nágrannalönd á borð við Svíþjóð og Finnland sem nýta frekar lífmassa frá skógrækt. Áætlað er að með innleiðingu sjálfbærs flugvélaeldsneytis takist að gera innanlandsflug að fullu grænt fyrir árið 2030. Til lengri tíma litið er jafnframt stefnt að innleiðingu rafknúins flugs eftir 2030.

Finnland

Samkvæmt stefnu Finnlands í flugmálum er rafknúið flug hluti af 12 ár á áætlun (2021–2032) þar sem stefnt er að kolefnishlutleysi fyrir árið 2030. Stjórnvöld horfa til rafknúins flugs sem lykillausnar þegar kemur að því að draga úr losun og um leið bæta innanlandsflugþjónustu. Þess vegna fjárfesta Finnar nú í rannsóknum og nýsköpun á sviði rafeldsneytis og vinna ásamt Alþjóðaflugmálastofnunin (ICAO)
Alþjóðaflugmálastofnunin (International Civil Aviation Organisation, ICAO), nánar á: https://www.icao.int/
og Flugöryggisstofnun Evrópu (EASA)
Flugöryggisstofnun Evrópu (European Union Aviation Safety Agency, EASA), nánar á: https://www.easa.europa.eu/en
að þróun staðla fyrir raf- og tvinnflugvélar. Enn fremur er regluverk um rafknúið flug í mótun og er meðal annars horft til öryggisatriða á borð við eldhættu vegna rafgeyma og vetrarviðhalds á flugvöllum.

Ísland

Í flugstefnu Íslands, sem kynnt var árið 2020, er mikil áhersla lögð á að draga úr umhverfisáhrifum og ýta undir umskipti yfir í rafknúið flug. Alþingi skipaði því starfshóp árið 2021 sem ætlað er að setja fram stefnu um vistvæn orkuskipti í innanlandsflugi fyrir árið 2030 þar sem áherslan er á raforku. Rétt eins og hjá hinum norrænu löndunum er gert ráð fyrir að helstu tækifæri fyrir rafknúið flug felist í styttri leiðum innanlands með aukinni tíðni flugs og samdrætti í bæði losun og kostnaði (Innviðaráðuneyti Íslands, 2022). Jafnframt er lögð áhersla á þörfina á því að efla innviði, til dæmis með bættri raforkudreifingu til flugvalla á landsbyggðinni, til að styðja við þessi markmið. Ísland ætlar sér að tryggja að 20 prósent alls innanlandsflugs noti endurnýjanlega orku, þ. á m. raforku, fyrir árið 2030 og stefnt er að því að allt innanlandsflug verði knúið með endurnýjanlegri orku fyrir árið 2040. Þá er einnig stefnt að því að Ísland verði vettvangur fyrir prófanir raf- og tvinnflugvéla fyrir árið 2026.

Noregur

Norðmenn eru fremstir í flokki norrænu þjóðanna þegar kemur að rafknúnu flugi. Í landsáætlun sem unnin var árið 2020 eru sett fram markmið um innleiðingu rafknúins áætlunarflugs með stuðningi norskra stjórnvalda auk samstarfsaðila á borð við Widerøe, SAS og Zero Emission Resource Organisation (Avinor, 2020). Helstu áfangar eru meðal annars að fyrsta rafknúna áætlunarflugið verði farið fyrir 2030 og að innanlandsflug verði að fullu rafknúið fyrir 2040, sem myndi þýða 80 prósenta samdrátt í losun miðað við árið 2020.
Norðmenn stefna jafnframt að því að koma upp miðstöð fyrir þróun og prófanir á rafknúnum flugvélum og nýta sér stuttar innanlandsflugleiðir til skjótrar innleiðingar. Reiknað er með að litlar rafknúnar flugvélar með allt að 19 sætum geti hafið flug á stuttum leiðum á árunum 2025–2030, jafnvel við krefjandi vetraraðstæður. Þessi stefna er liður í stærra markmiði Noregs um jarðefnaeldsneytislaust flug fyrir árið 2050.

Svíþjóð

Svíþjóð hefur sett sér markmið um að ná jarðefnaeldsneytislausu flugi og liður í því er að vinna að rafvæðingu innanlandsflugs fyrir árið 2030 og alls flugs frá sænskum flugvöllum fyrir árið 2045. Stjórnvöld hafa þó ekki sett fram sértæk markmið í flugmálum en í rafvæðingarstefnu þeirra frá 2020 er mikilvægi þess að rafvæða flug undirstrikað  og áhersla lögð á uppbyggingu innviða, raforkunets og hleðsluaðstöðu á flugvöllum (Innviðaráðuneyti Svíþjóðar, 2020). Þá er einnig unnið að ýmsum verkefnum á þessu sviði innan sænsks flugiðnaðar.
Samgöngustofnun Svíþjóðar og Greiningarmiðstöð samgöngumála hafa fengið það hlutverk að greina og styðja við rafknúið flug með áherslu á lítil og meðalstór fyrirtæki og stuðla að nýsköpun á sviði flugtækni. Swedavia, sem er rekstraraðili ríkisrekinna flugvalla í Svíþjóð, hefur sett sér það markmið að gera alla tíu flugvelli sína tilbúna fyrir rafknúnar flugvélar fyrir árið 2025 og hefja fyrsta rafknúna áætlunarflugið á sama tíma.