Hvað er þjónustuveiting og hvers vegna skiptir hún máli fyrir dreifbýlissvæði á Norðurlöndum?
Margt er líkt með fyrirkomulagi velferðarþjónustu í norrænu löndunum. „Norræna líkanið“ byggist á „samfélagssáttmála“ sem felur í sér sameiginlega ábyrgð samfélagsins á því að veita tiltekna þjónustu og uppfylla ákveðnar þarfir fólks, svo sem þegar kemur að heilbrigðis- og félagsþjónustu og menntun. Samfélags- og lýðfræðilegar breytingar, loftslagsbreytingar, hnattvæðing og aðrir þættir gera það að verkum að eftirspurn og þörf fyrir þjónustu breytist ört. Samkvæmt niðurstöðum rannsóknarinnar er þjónustuþörf nú meiri og fleira er talið til grunnþjónustu en það sem hefðbundin velferðarþjónusta nær til. Þessar breytingar hafa áhrif á veitingu þjónustu á dreifbýlissvæðum þar sem fólksfækkun skapar erfiðleika fyrir stjórnvöld. Starfsemi verður að taka mið af því að íbúafjöldi fer minnkandi þar sem hlutfall ungs fólks lækkar á meðan hlutfall eldra fólks hækkar og þörfin á þjónustu eykst.
Á Norðurlöndum er að finna margs konar mismunandi landsvæði, svo sem sjávarbyggðir, innsveitir, fjalllendi, eyjar, sífrera, strjálbýl svæði og þéttbýl, sem hvert og eitt kallar á sérstaka nálgun þegar kemur að þjónustuveitingu. Opinberir aðilar á Norðurlöndum eru sömuleiðis mjög ólíkir með tilliti til umfangs, aðstæðna, tungumáls, vinnulags, skattstofna og ábyrgðarsviðs. Allir þessir þættir hafa áhrif á getu þeirra til að veita þjónustu og halda upp innviðum í dreifbýli. Misjafnt er innan Norðurlanda hvaða aðilar standa að þjónustu í dreifbýli; ríkisstofnanir, héraðs- og sveitastjórnir, opinber fyrirtæki, einkafyrirtæki, félagasamtök og aðrir aðilar úr einkageiranum eða opinbera geiranum, ýmist hver í sínu lagi eða í samstarfi.
Markmið verkefnisins “Service provisions and access to services in Nordic rural areas – secure, trusted and for all ages” er að greina hvernig megi skilja og skilgreina helstu þjónustuþarfir fyrir ólík dreifbýlissvæði. Einnig hvernig hægt sé að skipuleggja lausnir við áskorunum varðandi þjónustuveitingu í dreifbýli. Í þessu skyni var farið í gegnum rannsóknarrit, svæðisbundnar stefnur voru greindar og unnar voru átta tilviksrannsóknir, ein frá hverju norrænu landi eða sjálfsstjórnarsvæði. Þá voru haldnar vinnustofur með það fyrir augum að finna dæmi, lausnir og þjónustuverkefni á Norðurlöndum. Einnig var lagt mat á það hverjar helstu þjónustuþarfir eru og hvernig þeim er mætt á dreifbýlissvæðum á Norðurlöndum.