Fyrir stjórnvöld á landshluta- eða sveitarstjórnarstigi
Vinna má gegn efnahagslegum takmörkunum og skorti á vinnuafli í veitingu þjónustu í dreifbýli með því að ráða fólk erlendis frá. Bjóða mætti upp á tungumálakennslu og nám sem hluta af ráðningarkjörum og keppast ætti við að bjóða samkeppnishæf laun. Samstarf á milli sveitarfélaga og landshluta getur stuðlað að betri launum og eftirsóknarverðari starfskjörum. Nýta má stefnumótandi áætlunargerð á landshluta- og sveitarstjórnarstigi auk samráðs við almenning til að laga þjónustustaði að minnkandi skattstofni. Slík stefnumótandi áætlunargerð felur í sér innri og ytri samskipti, til dæmis með auknu samráði við heimamenn um það hvað sé að gerast, hvernig þeir líti á stöðuna og hverjar áherslur þeirra séu.
Efla samstarf á milli landsvæða og sveitarfélaga um veitingu betri þjónustu með því að samnýta fjármagn eða mannauð. Samstarf um aðlögun þjónustu að loftslagsbreytingum. Slíkt samstarf getur falist í því að koma upp opinberri skipulags- og stjórnsýslustofnun sem metur hvernig aðlaga þarf mismunandi tegundir af þjónustu að breyttu loftslagi með auknum veðuröfgum. Til dæmis þarf að gera áætlanir varðandi íbúðasvæði og aðra mikilvæga innviði á borð við heilsugæslustöðvar, sjúkrahús og skóla með tilliti til þess hvernig megi sjá þeim fyrir rafmagni, vatni og fráveitu þegar öfgakenndir veðuratburðir eiga sér stað. Einnig þarf að tryggja vegi á svæðinu, auk samgöngumiðstöðva á borð við flugvelli og hafnir við slíkar aðstæður.