Hvernig er grunnþjónusta veitt á dreifbýlissvæðum?
Hið opinbera, einkaaðilar og borgarasamfélagið bera ábyrgð á því að tryggja þjónustu á landsbyggðinni. Einnig eru til staðar samstarf og samningar af ýmsu tagi á milli þessara aðila sem gera það kleift að veita þjónustuna. Þótt viðmælendur hafi lagt áherslu á mikilvægi sjálfstæðis sveitarfélaga og landssvæða þegar kemur að því að halda úti opinberri þjónustu er einnig um að ræða bæði formlegt og óformlegt samstarf við aðra opinbera aðila og við aðila úr einkageiranum eða borgarasamfélaginu. Benda má á að þótt samstarf um veitingu þjónustu sé talin hagkvæm leið með tilliti til nýtingar á fjármagni eða vinnuafli og sem valkostur við sameiningu sveitarfélaga fylgir því einnig áhætta þar sem erfiðara er að skilgreina pólitíska ábyrgð á tilteknum aðgerðum.
Hverjar eru helstu áskoranirnar tengdar veitingu grunnþjónustu á dreifbýlissvæðum og hverjar eru lausnirnar?
Samanburður á niðurstöðum tilviksrannsókna á áskorunum tengdum veitingu grunnþjónustu á dreifbýlissvæðum sýnir að ýmis sameiginleg atriði má finna alls staðar á Norðurlöndum. Helst ber að nefna skort á vinnuafli og erfiðleika við að laða að fólk sem býr yfir réttri hæfni til að veita þjónustuna og erfiðleika við fjármögnun þjónustunnar auk landfræðilegra þátta á borð við loftslag og langar vegalengdir sem hafa áhrif á veitingu þjónustu. Húsnæðisskortur, skrifræði og stjórnsýsla, stafvæðing og álag vegna ferðaþjónustu á háannatíma eru einnig þættir sem valda erfiðleikum á sumum svæðum.
Jafnframt sýna niðurstöðurnar að sömu tækifæri eru til staðar á Norðurlöndum öllum þegar kemur að stefnumótun varðandi veitingu þjónustu í dreifbýli. Þar ber hæst stafvæðingu þjónustu, aukið samstarf nágrannasveitarfélaga og -byggðarlaga í stað sameiningar opinberra aðila og aukið samstarf á milli opinbera geirans, einkageirans og borgarasamfélagsins.