Um ritið
Veiting grunnþjónustu og aðgengi að þjónustu í dreifbýli á Norðurlöndum
Þetta stefnuyfirlit er byggt á niðurstöðum verkefnisins
Service Provision and Access to Services In Nordic Rural Areas – Secure, Trusted And For All Ages. Verkefnið var unnið á vegum norræna þemahópsins um græna og inngildandi byggðaþróun. Hópurinn er liður í norrænni samstarfsáætlun um byggða- og skipulagsmál fyrir árin 2021–2024 og stuðlar að uppfyllingu
Framtíðarsýnar okkar 2030 um að Norðurlönd verði samþættasta og sjálfbærasta svæði heims. Hópinn skipa sérfræðingar í byggða- og skipulagsmálum frá löndunum sem í samstarfi við vísindamenn Nordregio skapa og miðla nýrri þekkingu ásamt því að skapa norrænan virðisauka.
Stefnumótunartillögurnar sem settar eru fram hér eru byggðar á niðurstöðum úr tveimur fyrri skýrslum verkefnisins sem birtar voru árin 2022 og 2023. Niðurstöðurnar voru kynntar og ræddar á vinnustofu með viðkomandi og áhugasömum aðilum frá Norðurlöndum í febrúar 2023. Vinnustofan var nýtt til að sannreyna niðurstöður rannsóknarinnar, bæta við fínni blæbrigðum og víkka út niðurstöðurnar, sem og til að forgangsraða og vinna stefnumótunartillögur.
Ítarefni:
Tengiliðir:
Ágúst Bogason
Research Fellow
agust.bogason@nordregio.org
Höfundar: Ágúst Bogason & Elin Slätmo, Nordregio
Samskipti og umbrot: Miia Itänen, Nordregio
Kort: Anna Vasilevskaya, Nordregio
Myndir: Ágúst Bogason, Sofia Strömgård, Unsplash
Nordregio policy brief 2025:11
ISSN: 2001-3876
DOI: http://doi.org/10.6027/PB2025:11.2001-3876