Go to content
pontus-wellgraf-sikxAtk_2O8-unsplash.jpg

Hvað var gert?

  • Farið var yfir norræn og alþjóðleg rit um þjónustuveitingu í dreifbýli, sem birst hafa í rannsóknarritum og á vegum rannsóknarstofnana, yfirvalda og félagasamtaka, til að meta og leita svara við fyrstu rannsóknarspurningunni: Hverjar eru þjónustuþarfirnar í norrænu dreifbýli og strjálbýli, nú og í framtíðinni?
  • Gerð var úttekt á núverandi áherslum allra fimm norrænu landanna auk sjálfstjórnarsvæðanna þriggja þegar kemur að þjónustu í dreifbýli og svæðisbundinni þjónustu. Þessi greining fór fram með yfirferð á núverandi stefnum í byggðamálum sem varpa ljósi á helstu áherslur varðandi þjónustuveitingu. Þetta gerði það kleift að beina athyglinni að því hvernig dreifbýlisstefna getur stutt við þjónustuveitingu og laut að annarri rannsóknarspurningunni: Hvernig er hægt að veita fólki á dreifbýlissvæðum góða og staðbundna þjónustu? Þetta var kynnt og unnið nánar með á vinnustofu sem norrænir hagaðilar sóttu árið 2021.
  • Aðgengi var greint út frá landfræðilegum gögnum til að öðlast yfirsýn sem hægt væri að nota sem grunn fyrir tilviksrannsóknir. Til þess að finna svæði fyrir hugsanlegar tilviksrannsóknir var byrjað á því að greina aðgengi að fjórum þjónustusviðum, þ.e. matvöruverslunum, lyfjaverslunum, bókasöfnum og menntastofnunum, með hliðsjón af íbúaþéttni í dreifbýli.
  • Gerðar voru tilviksrannsóknir í öllum norrænu löndunum fimm og sjálfstjórnarsvæðunum þremur árið 2022. Í þeim fólust 56 viðtöl og samtöl við ólíka aðila á þessu sviði. Í tilviksrannsóknunum var litið nánar á þær áskoranir og þau tækifæri sem fram komu á fyrri stigum rannsóknarinnar. Markmiðið var bæði að sannreyna fyrri niðurstöður og benda á hugsanlega þjónustu sem gæti talist til „grunnþjónustu“ en hefði ekki komið fram á fyrri stigum. Tilviksrannsóknirnar fjölluðu um þriðju rannsóknarspurninguna: Hver eru helstu úrlausnarefni og tækifæri varðandi trygga og örugga þjónustuveitingu í dreifbýli og strjálbýli á Norðurlöndum?
  • Haldin var vinnustofa árið 2023 þar sem niðurstöður fyrri verkefna voru kynntar og ræddar. Á vinnustofunni var einnig unnið að því að forgangsraða og móta stefnumótunartillögurnar sem hér eru settar fram. Tillögunum er skipt í tvennt, annars vegar þær sem beint er til landsbundinna stjórnvalda og hins vegar þær sem beint er til landshluta- eða sveitarstjórna. Tillögurnar eru byggðar á niðurstöðum rannsóknarinnar og voru ræddar, þeim forgangsraðað og unnið áfram með þær í vinnustofum með viðkomandi hagaðilum frá ólíkum svæðum á Norðurlöndum.