Go to content

Hvað er snjöll aðlögun og hvers vegna skiptir hún máli?

Lýðfræðileg þróun á Norðurlöndum einkennist af ójafnri dreifingu íbúa. Íbúafjölgun hefur aðallega verið bundin við ákveðnar stórar og meðalstórar borgir og svæðin í kringum þær, en fólksfækkun dreifist yfir stærri landsvæði. Mörg minni, dreifbýl og/eða fámennari svæði standa frammi fyrir langtímafólksfækkun, þó að þessi þróun einskorðist ekki við dreifbýli (Stjernberg o.fl., 2024).  Kort 1 sýnir hlutfallsbreytingu á heildaríbúafjölda fyrir öll sveitarfélög á Norðurlöndunum frá 1990 til 2022. Þessi heildarbreyting á íbúafjölda inniheldur bæði náttúrulega breytingu (fæddir mínus dánir) og innflytjendur.
Fólksfækkun hefur áhrif á opinbera þjónustu, innviði, tekjur og skipulag sveitarfélaga. Eftir því sem íbúum fækkar minnka tekjur sveitarfélaga af skattheimtu og gjöldum. Norðurlöndin einkennast yfirleitt af miklum vegalengdum og víðlendum dreifbýlissvæðum sem skapar áskoranir fyrir sveitarfélög og svæðisbundin stjórnvöld. Innviðakerfi verða of stór miðað við núverandi og framtíðar íbúafjölda og dreifingu hans, á sama tíma og stjórnun og endurfjárfestingar eru nauðsynlegar til að viðhalda lögbundinni samfélagsþjónustu (Grundel og Magnusson, 2022). Svæði sem glíma við fólksfækkun standa einnig frammi fyrir vanda vegna umsjónar húsnæðis sem stendur autt, auk þess að skorta hentugt húsnæði fyrir sérstakar þarfir (Eliasen o.fl., 2020). Fækkun á vinnuafli, erfiðleikar í opinberri stjórnsýslu og stjórnarháttum og vandamál við skipulag menntunar þegar nemendum fækkar eru einnig þekkt vandamál (Slätmo o.fl., 2024; Carson o.fl., 2022). Jafnframt eykst eftirspurn eftir öldrunar- og heilbrigðisþjónustu eftir því sem samfélagið eldist (Heleniak og Sánchez Gassen, 2020). Loks getur fólksfækkun einnig haft áhrif á félagslega virkni og upplifun af stöðum (Syssner, 2024).
Þrátt fyrir að alþjóðastofnanir, ríkisstjórnir og sveitarfélög takist á við fólksfækkun með ýmsum hætti (Copus o.fl., 2021), hafa norrænir stefnumótendur haldið fast við hefðbundnar áætlanir sem byggjast á fólksfjölgun (Syssner, 2022). Í fræðiritum er þó einnig talað um „blandaða“ nálgun þar sem sveitarfélög eða landshlutar lýsa opinberlega yfir áherslu á vöxt en innleiða aðlögunarþætti í daglegum ákvörðunum (Kahila o.fl., 2022; Hagen o.fl., 2023). Á Norðurlöndum er algengt að sveitarfélög vinni saman með það fyrir augum að nýta fjármagn með skilvirkum hætti til að mæta áskorunum fólksfækkunar. Önnur dæmi eru hagræðing innviða og þjónustuáætlana, nýsköpun og skapandi lausnir vegna skorts á vinnuafli og áhersla á þarfir þeirra íbúa sem eftir eru (Kahila og Teräs, 2021; Syssner, 2022).
Snjöll aðlögun sem nálgun til að takast á við fólksfækkun felur meðal annars í sér aðlaga stefnur, innviði og þjónustu með fyrirbyggjandi hætti til að mæta fólksfækkun og hækkandi meðalaldri íbúa. Með því að takast á við lýðfræðilegan raunveruleika með aðlögunaraðgerðum geta skapast ný tækifæri fyrir sveitarfélög og landshluta í staðarsköpun (e.place-making), skipulagningu á þjónustu og samfélagsþróun.
Total population change map
Kort 1: Heildarbreyting á íbúafjölda eftir sveitarfélögum á Norðurlöndunum, 1990–2022 (1992–2022 fyrir Ísland vegna skorts á tiltækum gögnum fyrir 1992). Minna kortið í hægra horninu sýnir heildarbreytingu á íbúafjölda á svæðisbundnu stigi á Norðurlöndunum.