Go to content
Mynd: Elin Cedergren

Niðurstöður

Meðal lykilþátta sem komu fram var mikilvægi þess að endurskilgreina árangur þannig að hann feli í sér félagslega velferð, virka samfélagsþátttöku og umhverfislega sjálfbærni. Á vinnustofunum var lögð áhersla á þörfina á heildrænum og sveigjanlegum skipulagsaðferðum sem byggjast á raunhæfum mannfjöldaspám og sviðsmyndagreiningu. Ein leið fram á við er að samþætta snjalla aðlögun við græn umskipti í langtímaáætlunum sveitarfélaga og landshluta.
Samstarf milli sveitarfélaga og fullnægjandi mönnun eru lykilatriði þegar kemur að því að bæta þjónustu og stjórnsýslu. Stefnumörkun á landshluta- og landsvísu ætti að stuðla að samstarfi sveitarfélaga og tryggja fjármögnun sem miðar að aðlögun og bættum lífsgæðum fremur en fólksfjölgun. Virk þátttaka almennings og fjárfestingar í félagslegum innviðum eru nauðsynlegar til að auka pólitískan stuðning og tryggja árangursríkar, staðbundnar leiðir til að mæta fólksfækkun. Fjölnota þjónustumiðstöðvar og stafrænar lausnir geta skapað tækifæri til að auka skilvirkni og aðgengi að þjónustu.
Verkefnið komst að þeirri niðurstöðu að snjöll aðlögun bjóði sveitarfélögum og landshlutum upp á leiðir til að nýta tækifæri sem felast í lýðfræðilegum breytingum, en pólitískur vilji á landsvísu er grundvallarforsenda fyrir fyrirbyggjandi og heildræna nálgun. Sveitarfélög sem glíma við fólksfækkun hafa möguleika á að verða leiðandi í því að aðlagast fólksfækkun með því að nýta auðlindir sínar til að bæta líf íbúanna.