Go to content

Um verkefnið

Þetta stefnuyfirlit var unnið innan verkefnisins „Smart Adaptation to Rural Realities: Approaches and Practices in Nordic Municipalities and Regions“ (2023–2025). Megintilgangur verkefnisins er að greina og lýsa snjallri aðlögun og áhrifum hennar á stjórnsýslu á Norðurlöndunum. Einnig miðar verkefnið að því að auðvelda þekkingarmiðlun um mögulegar aðlögunarleiðir á milli sveitarfélaga, svæða og á landsvísu á Norðurlöndum.
Rannsóknarstarfið fól í sér yfirferð á norrænum og evrópskum heimildum um fólksfækkun og snjalla aðlögun sem birtar hafa verið í tímaritum og af rannsóknarstofnunum, opinberum stofnunum og samtökum. Auk þess var gerð bakgrunnsgreining á stefnum um byggða- og dreifbýlisþróun á Norðurlöndum, ásamt stuðningsaðgerðum á landsvísu vegna fólksfækkunar. Tíu landssértækar vinnustofur voru haldnar (2023–2024) með þátttöku sveitarstjórnarfólks, embættismanna á landshluta- og landsstjórnarstigi og sérfræðinga ásamt stjórnmálafólki frá Svíþjóð, Finnlandi, Noregi, Íslandi og Danmörku. Þá var einnig haldin sameiginleg norræn vinnustofa þar sem þátttakendur frá öllum löndunum ræddu áskoranir vegna fólksfækkunar, tækifæri í tengslum við þróun á sveitarfélags- og landshlutastigi utan við fólksfjölgun, ásamt því að leggja til leiðir til aðlögunar á mismunandi stjórnsýslustigum.
Þátttakendur í vinnustofunum voru valdir úr þeim sveitarfélögum sem hafa upplifað mestu fólksfækkunina (1990–2022), með áherslu á tíu sveitarfélög í hverju landi sem höfðu hlutfallslega mesta fólksfækkun. Landshlutar voru valdir eftir því hversu mörg sveitarfélög innan þeirra höfðu upplifað fólksfækkun. Þótt flest þeirra sveitarfélaga sem voru valin hafi upplifað stöðuga fólksfækkun voru einnig valin sveitarfélög þar sem fækkun hafði verið minni. Í nokkrum þeirra hafði íbúum fjölgað lítils háttar á tímabilinu sem skoðað var. Valinu var ætlað að endurspegla fjölbreytta reynslu og sjónarhorn varðandi lýðfræðilegar áskoranir. Áhersla var lögð á fjölbreytni með tilliti til landfræðilegra aðstæðna, stærðar og lýðfræðilegrar samsetningar, en útkoman endurspeglar þó einkum fámenn en víðlend sveitarfélög.
Þakkir
Niðurstöður og stefnuáherslur í þessu stefnuyfirliti voru mótaðar  á vegum Nordregio á grundvelli framlags þátttakenda í vinnustofunum,. Við viljum þakka fulltrúum sveitarfélaga, landshluta, stofnana og ráðuneyta, auk sérfræðinga í stefnumótun, fyrir virka þátttöku í vinnustofum og fyrir að miðla innsýn sinni og þekkingu meðan á verkefninu stóð.
katherine-hanlon-xaG8oaZD7ss-unsplashdfdggf.jpg
Kort 2. Kortið sýnir þau sveitarfélög í Svíþjóð, Noregi, Finnlandi, Danmörku og á Íslandi sem tóku þátt í vinnustofunum. Skýringar sýna hversu oft fulltrúar frá hverju sveitarfélagi eða svæði tóku þátt í vinnustofunum.