Go to content
Mynd: Miia Itänen

Tillögur að stefnumótandi aðgerðum varðandi snjalla aðlögun

Í þessu stefnuyfirliti eru settar fram aðgerðaáherslur á sjö stefnumótunarsviðum fyrir snjalla aðlögun að fólksfækkun á Norðurlöndum. Aðgerðaáherslurnar eru byggðir á ellefu vinnustofum þar sem saman komu skipulagsfulltrúar á sveitarstjórnar-, landshluta- og landsstigi, sérfræðingar í byggðaþróun, stefnumótendur og sérfræðingar frá Svíþjóð, Finnlandi, Noregi, Íslandi og Danmörku. Umræðurnar miðuðu að því að móta stefnumótunartillögur og lauk með sameiginlegri norrænni vinnustofu. Þótt verkefnið hafi ekki bent á mótaðar eða reyndar heildrænar aðferðir við snjalla aðlögun
Að undanskilinni svæðisbundinni stefnu Norður-Karelíu 2022–2025, þar sem nálgun snjallrar aðlögunar hefur verið innleidd: https://pohjois-karjala.fi/wp-content/uploads/2023/02/Brochure-POKAT2025-21x21-web.pdf
veita aðgerðaáherslurnar mikilvæga innsýn í frekari leiðir til að aðlagast fólksfækkun á Norðurlöndum og annars staðar.
    1. Endurskilgreining orðræðu um fólksfækkun
    2. Uppbygging þekkingar á fólksfækkun, lýðfræðilegum breytingum og áhrifum þeirra
    3. Samskiptamiðuð áætlanagerð og kostir lítilla samfélaga
    4. Félagslegir innviðir og landnýtingaráætlanir
    5. Lagskipt stjórnsýsla og samstarf
    6. Fjármögnun aðlögunar til langs tíma og framtíðarmiðuð áætlanagerð
    7. Viðbrögð við fólksfækkun í tengslum við grænu umskiptin
    Mynd: Laura Karlin/norden.org

    1. Endurskilgreining orðræðu um fólksfækkun

    Fólksfækkun hefur gjarnan mjög neikvæðan blæ yfir sér sem getur leitt til tregðu við að ræða lýðfræðilegan samdrátt með opinskáum hætti. Sveitarfélög enn þá leggja gjarnan áherslu á stefnumál sem miða að fólksfjölgun og óttast að viðurkenning á fólksfækkun dragi úr aðdráttarafli þeirra eða pólitískum stuðningi. Með því að færa áhersluna frá fólksfjölgun sem mælikvarða á árangur yfir á vellíðan, viðnámsþrótt og lífsgæði geta sveitarfélög komið sér upp framtíðarmiðaðri stefnu sem miðast við fólksfækkun. Sveitarfélög sem leggja áherslu á kosti þess að vera lítil – svo sem náið samfélag, meiri sveigjanleika í stjórnun og auðveldara samráð við íbúa – geta byggt upp traust á aðlögunaraðgerðum.
    Aðgerðir fyrir stefnumótendur á sveitar- og landshlutastjórnarstigi:
    • Viðurkenna lýðfræðilegar breytingar í stefnumótun og tryggja gagnsæi varðandi áskoranir og fórnarkostnað vegna fólksfækkunar.
    • Styðja við mildrandi aðgerðir með aðlögunarlausnum sem miða að því að viðhalda búsetugæðum og efnahagslegum viðnámsþrótti.
    • Virkja íbúa og hagsmunaaðila á staðnum í þverfaglegri og framtíðarmiðaðri -þátttöku til að tryggja lögmæti og stuðning við aðlögunaraðgerðir.
    Aðgerðir fyrir stefnumótendur á landsvísu:
    • Veita sveitarfélögum og landshlutum leiðbeiningar um hvernig eigi að samþætta snjalla aðlögun við langtímaáætlanagerð.
    • Styðja við herferðir til að gers umræður um fólksfækkun og aðlögun í opinberri stefnumótun minna neikvæðar.
    Mynd: Mads Schmidt Rasmussen/norden.org

    2. Uppbygging þekkingar á fólksfækkun, lýðfræðilegum breytingum og áhrifum þeirra

    Sveitarfélög skortir oft nákvæm lýðfræðileg gögn og samanburðarupplýsingar sem þarf fyrir árangursríka áætlanagerð sem tekur mið af fólksfækkun. Með því að efla gagnaöflun, sviðsmyndagreiningu og þverfaglegt samstarf geta landshlutar og sveitarfélög betur brugðist við lýðfræðilegum breytingum og mótað sérsniðna stefnu.
    Aðgerðir fyrir stefnumótendur á sveitar- og landshlutastjórnarstigi:
    • Fylgjast betur með lýðfræðilegri þróun og bæta sviðsmyndagreiningu á sveitarfélags- og landshlutavísu.
    • Taka þátt í samstarfi til að skiptast á þekkingu við önnur sveitarfélög og svæði sem standa frammi fyrir svipuðum áskorunum.
    Aðgerðir fyrir stefnumótendur á landsvísu:
    • Tryggja að nákvæmar lýðfræðilegar og svæðisbundnar tölfræðiupplýsingar séu aðgengilegar sveitarfélögum. Einnig er þörf á samanburðarkerfum og greiningaraðferðum þvert á mörk sveitarfélaga og landshluta þar sem fólksfækkun hefur oft áhrif yfir slík mörk.
    • Stofna vettvang fyrir gagnamiðlun milli sveitarfélaga til að auka þekkingarmiðlun.
    • Styðja sveitarfélög og landshluta við að byggja upp sérfræðiþekkingu í lýðfræðilegum greiningum til að tryggja að gögn nýtist betur.
    Mynd: Miia Itänen

    3. Samskiptamiðuð áætlanagerð og kostir lítilla samfélaga

    Fólksfækkun er oft sett fram á neikvæðan hátt í opinberri umræðu, sem getur valdið andstöðu við aðlögunaraðgerðir. Þetta getur einnig dregið úr stuðningi í samfélaginu og takmarkað tækifæri til þess að skipuleggja fyrirbyggjandi aðgerðir og aðlögun. Íbúar geta einnig komið með mikilvæga innsýn í það hvernig staðir sem ganga í gegnum fólksfækkun eru metnir og nýttir og hvernig upplifun af þeim er, ásamt því að benda á mögulegar leiðir fram á við.
    Aðgerðir fyrir stefnumótendur á sveitar- og landshlutastjórnarstigi:
    • Auka aðkomu íbúa að skipulagsferlum til að virkja þá í að móta aðlögunaraðgerðir og efla tilfinningu þeirra fyrir hlutdeild sinni í og stolti yfir stað- og svæðisbundnum verkefnum.
    • Nýta kosti fámennra samfélaga, svo sem nánd, samheldni, lífsgæði o.s.frv.
    Aðgerðir fyrir stefnumótendur á landsvísu:
    • Styðja við uppbyggingu þekkingar og færni innan sveitarfélaga þegar kemur að virkri þátttöku almennings og samskiptamiðaðri áætlanagerð.
    Mynd: Miia Itänen

    4. Félagslegir innviðir og landnýtingaráætlanir

    Mörg sveitarfélög sem glíma við fólksfækkun standa frammi fyrir of stórum innviðum og versnandi aðgengi að þjónustu, sem leiðir til óhagkvæmni og fjárhagslegra byrða. Að sama skapi getur illa skipulagður niðurskurður á þjónustu dregið úr lífsgæðum og samfélagslegri samheldni. Með stefnumiðaðri nálgun á landnýtingu og þjónustuskipulag, t.d. með fjölnota þjónustukjörnum og endurnýtingu á rýmum, má auka skilvirkni í nýtingu úrræða um leið og aðgengi er viðhaldið. Fjárfesting í almenningsrýmum, húsnæði og samfélagsaðstöðu stuðlar að því viðhalda lífsgæðum á svæðum sem glíma við fólksfækkun.
    Aðgerðir fyrir stefnumótendur á sveitar- og landshlutastjórnarstigi:
    • Aðlaga landnýtingar- og innviðaáætlanir að breyttum þörfum íbúafjölda.
    • Fjárfesta í fjölnota þjónustukjörnum sem bæta aðgengi og lækka kostnað.
    • Þróa stefnumiðaðar áætlanir fyrir húsnæði og almenningsrými sem efla lífsgæði.
    • Kortleggja staðbundna þjónustu sem viðkvæmir hópar á afskekktum svæðum þurfa á að halda, þar á meðal lausnir eins og samgönguþjónustu.
    Aðgerðir fyrir stefnumótendur á landsvísu:
    • Tryggja fjármögnunarleiðir til að styðja sveitarfélög og landshluta við endurnýtingu innviða.
    • Tryggja að rammar um landsáætlanir gefi sveitarfélögum og landshlutum svigrúm til að laga þjónustu og landnýtingu að lýðfræðilegum veruleika.
    Mynd: Miia Itänen

    5. Lagskipt stjórnsýsla og samstarf

    Fólksfækkun fylgir ekki stjórnsýslumörkum en engu að síður ríkir oft samkeppni á milli sveitarfélaga í stað þess að þau vinni saman þegar kemur að því að laða að íbúa og fjárfestingar. Oft eru stofnanir þeirra líka ekki nógu vel í stakk búnar til að takast vel á við aðlögunaráætlanir til lengri tíma. Aukin samvinna milli sveitarfélaga og landshluta getur gert þjónustu skilvirkari, aukið samhæfingu stefnumótunar og skapað stærðarhagkvæmni. Ríkisstjórnir gegna lykilhlutverki við að fjarlægja lagalegar hindranir fyrir samstarfi og skapa hvata til samvinnu.
    Aðgerðir fyrir stefnumótendur á sveitar- og landshlutastjórnarstigi:
    • Þróa samstarfslausnir um samnýtingu auðlinda, þjónustu og stjórnsýslulega getu á sveitarfélags- og landshlutastigi.
    • Koma á sameiginlegum stefnumiðuðum áætlanaramma milli sveitarfélaga (og landshluta) til að takast á við sameiginlegar áskoranir.
    Aðgerðir fyrir stefnumótendur á landsvísu:
    • Tryggja lagalega umgjörð sem greiðir fyrir samstarfi milli sveitarfélaga og landshluta, með virðingu fyrir stað- og svæðisbundnum sérkennum og sjónarmiðum.
    • Veita stjórnvöldum/stofnunum sem bera ábyrgð á byggðaþróun stuðning við að aðstoða sveitarfélög við að hrinda aðlögunaraðgerðum í framkvæmd.
    Mynd: Elin Cedergren

    6. Fjármögnun aðlögunar til langs tíma og framtíðarmiðuð áætlanagerð

    Fjármögnunarleiðir leggja oft áherslu á fólksfjölgun sem gerir sveitarfélögum erfitt fyrir að tryggja fjármagn fyrir aðlögunaraðgerðir. Sveigjanleg fjármögnunarumgjörð sem styður við aðlögun, frekar en að vera bundin við vöxt, getur gert sveitarfélögum kleift að fjárfesta í sjálfbærum lausnum. Stefnumörkun ríkisstjórna ætti að ýta undir áætlanagerð sem byggist á langtímasviðsmyndum til þess að þróunaráætlanir standist áskoranir framtíðarinnar.
    Aðgerðir fyrir stefnumótendur á sveitar- og landshlutastjórnarstigi:
    • Tryggja að fjárhagsáætlanir endurspegli aðlögunarþarfir til langs tíma fremur en að horfa til skammtímalausna.
    • Nýta samstarf svæða til að tryggja sameiginlega fjármögnun fyrir samnýtta þjónustu og innviði.
    Aðgerðir fyrir stefnumótendur á landsvísu:
    • Tryggja fjármögnun til lengri tíma sem gerir sveitarfélögum og landshlutum kleift að hverfa frá stefnum sem byggjast á fólksfjölgun og beina sjónum sínum að aðlögunaraðgerðum.
    • Veita stofnstyrki til tilraunaverkefna (e. Living Labs) um snjalla aðlögun sem gera sveitarfélögum kleift að prófa og innleiða nýstárlegar aðlögunaraðgerðir á stærri skala.
    • Tryggja að jöfnunarkerfi taki tillit til sérstakra áskorana sveitarfélaga og svæða sem glíma við fólksfækkun.
    Mynd: Miia Itänen

    7. Viðbrögð við fólksfækkun í tengslum við grænu umskiptin

    Samþætta verður snjalla aðlögun öðrum mikilvægum umbreytingum sem norræn sveitarfélög og svæði standa nú frammi fyrir, svo sem grænum umskiptum og stafrænni væðingu. Með því að samræma snjalla aðlögun og stefnu um sjálfbæra þróun má skapa samlegðaráhrif sem styrkja bæði verkefnin. Til dæmis getur það skipt miklu máli fyrir þá sem eftir eru á fólksfækkunarsvæðum að sjá sveitarfélagið taka virkan þátt í framtíðarmiðuðum aðgerðum, jafnvel þótt þær miði ekki að fólksfjölgun. Þátttaka í aðgerðum sem tengjast grænum og stafrænum umskiptum getur einnig stuðlað að fjölbreyttari atvinnu- og menntunarmöguleikum á svæðinu. Árangur snjallrar aðlögunar í tengslum við græn umskipti og stafræna væðingu er þó háður staðbundinni þátttöku svo að tryggt sé að ávinningur skili sér.
    Aðgerðir fyrir stefnumótendur á sveitar- og landshlutastjórnarstigi:
    • Nýta náttúruauðlindir á sjálfbæran hátt fyrir þróun sveitarfélaga og svæða. Jafnframt kanna möguleika á nýjum leiðum skattlagningar til að halda eftir meiri ávinningi af fjárfestingum og nýjum framkvæmdum.
    • Taka þátt í nýju samstarfi og tækifærum tengdum grænum umskiptum til að auka framsýni í skipulagsmálum.
    Aðgerðir fyrir stefnumótendur á landsvísu:
    • Veita sveitarfélögum og landshlutum leiðbeiningar og stuðning við að samþætta snjalla aðlögun við stafræna væðingu og græn umskipti í langtímaáætlunum.
    • Stuðla að stefnumótun sem tryggir að staðbundnar auðlindir nýtist sveitarfélögum betur og efli staðbundinn efnahagslegan viðnámsþrótt og lífsgæði.
    • Tryggja stefnur sem greiða fyrir aðgengi allra að stafrænum innviðum og dreifðum atvinnutækifærum, sem gerir íbúum kleift að búa áfram á landsbyggðinni.