Go to content
Mynd: Miia Itänen

Inngangur

Víða í Evrópu má búast við því að fólksfækkun verði hið nýja norm. Mörg sveitarfélög og svæði á Norðurlöndum standa frammi fyrir miklum áskorunum vegna breyttra lýðfræðilegra aðstæðna sem meðal annars fela í sér fólksfækkun, öldrun og ójafna þróun íbúafjölda á milli svæða. Heilt á litið auka þessar lýðfræðilegu breytingar enn frekar á núverandi ójöfnuð og setja sum sveitarfélög í erfiða stöðu hvað varðar efnahagslega sjálfbærni, þjónustuframboð og innviðauppbyggingu.
Fólksfækkun hefur verið kölluð „óæskilegur sjúkdómur“ sem stjórnmálamenn og sveitarstjórnir hafa hikað við að takast á við vegna langrar hefðar fyrir því að leggja áherslu á vöxt (Sousa og Pinho, 2015, í Syssner 2015; Heleniak og Sánchez Gassen, 2020). Mikil lýðfræðileg leitni er þó yfirleitt ekki eitthvað sem sveitarstjórnir geta ráðið við. Þess vegna ættu stjórnvöld á lands-, landshluta- og sveitarstjórnarstigi einnig að leggja áherslu á stefnumótun þar sem þessi veruleiki er viðurkenndur og tekið er mið af honum. Snjöll aðlögun býður upp á leið til að endurhugsa veitingu aðfanga, aðlaga þjónustu og stuðla að nýstárlegum lausnum sem henta fámennari samfélögum. Í stað þess að líta eingöngu á fólksfækkun sem vandamál getur snjöll aðlögun boðið upp á framsækna nálgun sem breytir orðræðu, nýtir staðbundna styrkleika og eflir viðnámsþrótt samfélaga.
Í þessu stefnuyfirliti er fjallað um helstu þætti snjallrar aðlögunar og hvernig henni er beitt í stefnumörkun og framkvæmd. Skoðaðar eru mögulegar leiðir fyrir stefnumótendur og skipulagsaðila í sveitarfélögum, landshlutum og á landsvísu á Norðurlöndum til að innleiða aðlögunaraðgerðir til að takast á við fólksfækkun og lýðfræðilegar breytingar.